Ókeypis samfélagsverkefni · DMZ-forútgáfa

// ÓKEYPIS SAMFÉLAGSVERKEFNI FRÁ KASTRO

Færri auðkenni. Meiri aðgát..

DMZ reynir að maska valin auðkenni áður en þú sendir texta í ChatGPT eða Claude. Vinnslan fer fram á tækinu þínu. Ókeypis hjálpartól með áherslu á íslensku og skýrar takmarkanir.

DMZ Chromium-viðbótin er í boði til prófunar með tilbúnum gögnum. ZIP-pakki, ekki útgáfa í viðbótarverslun.

viðbót · tilbúin gögn
01 · Þú skrifarLeita að auðkennum…

Arna Jónsdóttir, kt. 140182-8858, óskar eftir tilboði. Skrifaðu svar sem ég get sent á demo@example.com.

02 · Það sem líkanið færAuðkennum skipt út

⟦NAME-1: XXXXX XXXXX⟧, kt. ⟦KT-2: XXXXX-XXXX⟧, óskar eftir tilboði. Skrifaðu svar sem ég get sent á ⟦EMAIL-3: XXXXX@XXXXX.XXX⟧.

03 · Þú lestSvar líkans · maskað

Sæl ⟦NAME-1: XXXXX XXXXX⟧Arna Jónsdóttir, takk fyrir fyrirspurnina. Við sendum þér tilboðið á morgun.

Tengitafla · á þessu tæki · eyðist þegar lotu lýkurArna Jónsdóttir⇄⟦NAME-1: XXXXX XXXXX⟧140182-8858⇄⟦KT-2: XXXXX-XXXX⟧demo@example.com⇄⟦EMAIL-3: XXXXX@XXXXX.XXX⟧

Skýringarmynd af fyrirhugaðri virkni; raunveruleg merki hafa líka handahófskennt lotunúmer. Öll gildi eru tilbúin og prófunarkennitölur nota aldarstafinn 8. Vinnandi DMZ-frumgerð er handvirkt hliðarspjald.

Greina. Maska. Endurheimta.

Hjálpartól í samtalinu, með staðbundinni tengitöflu.

01

Greina

DMZ leitar að völdum auðkennum og leyndarmálum í studdum textasendingum í ChatGPT og Claude. Greiningin fer fram á tækinu.

02

Maska

Greindum gildum er skipt út fyrir sýnileg merki. Yfirfarðu alltaf textann; sum auðkenni geta farið fram hjá greiningunni.

03

Endurheimta

Þegar óbreytt merki koma til baka setur DMZ raungildin inn í staðbundið svar. Tengitaflan helst á tækinu.

Gagnlegt án sölusamtals.

DMZ fylgir ókeypis samfélagsstefnu Dmark og Kastro Lookup.

Ókeypis

Engin DMZ-áskrift, sætalágmark eða greitt öryggisþrep. Þú þarft ekki DMZ-reikning. Kostnaður og skilmálar AI-vefsins eru aðskilin.

Á tækinu

DMZ sendir hvorki fyrirspurnina né tengitöfluna til DMZ. AI-vefurinn fær textann sem þú sendir, líka það sem greinist ekki.

Með samfélaginu

Athugasemdir, tilbúin prófunardæmi og þýðingar hjálpa okkur að bæta tólið. Aðstoð frá Kastro er valfrjáls.

Hvað þýðir ókeypis? →

ÞEKKJUM MÖRKIN

Yfirfarðu áður en þú sendir.

DMZ getur misst af auðkennum. Við bilun heldur sending áfram með viðvörun. Skjöl, myndir og viðhengi eru send óbreytt með viðvörun. Samhengi getur enn auðkennt fólk; möskun tryggir ekki nafnleynd.

Lesa um gagnamörkin →

DMZ · ný prófunarútgáfa · 05.10.2026

Fleiri auðkenni möskuð að fullu.

Ný lokuð prófunarútgáfa bætir möskun netfanga, aðgangstákna og studdra heimilisfanga með húsnúmeri án póstnúmers. Hún varðveitir upprunalegan texta við endurheimt, þar á meðal broddstafi, og heldur betur utan um sendingar sem bíða greiningar. Breytt uppkast er ekki sent sjálfkrafa eftir bið.

Þetta eru breytingar í prófunarútgáfu, ekki almenn útgáfa. Nafnalíkanið er óbreytt og markmiðið um 99% greiningarárangur er enn óstaðfest.

Umbætur og takmarkanir →

Nafnagreining · staða þróunar · 05.10.2026

Nafnalíkanið helst óbreytt.

Ný þjálfunarumferð skilaði ekki líkani sem stóðst samanburð við núverandi líkan. Betri heimtur á tilbúnum laga- og fjármálatextum fylgdu lakari heimtur á almennum textum. Fyrra líkanið er því áfram í sérstakri DMZ-prófunarútgáfu. Engin almenn útgáfa hefur verið gefin út.

Óbreytt líkan á endurnýttum þróunarsöfnum
MælikvarðiAlmennur texti · 5.582 textahlutarTilbúnir laga- og fjármálatextar · 256 skjöl
Textahlutar með öll nöfn rétt98,57%97,66%
Heimtur nafna (recall)97,01%98,75%
Nákvæmni greininga (precision)95,55%99,37%
Nöfn sem vantar456
Rangar greiningar683

Markmiðið er að minnsta kosti 99% textahluta með öll auðkenni rétt og 99% heimtur í hverjum meginflokki texta. Það hefur ekki náðst. Óháð staðfesting er enn ólokin.

Textahluti telst aðeins réttur ef öll merkt auðkenni finnast með réttri tegund og nákvæmum mörkum, án aukagreininga. Heimtur mæla hlutfall merktra auðkenna sem finnast. Nákvæmni greininga (precision) er annar mælikvarði: hlutfall greininga sem eru réttar. Taflan metur aðeins nöfn; lokamarkmiðið nær til allra auðkennategunda.

Þetta eru þróunarmælingar eftir ítrekað val á líkönum og stillingum, ekki óháð lokaprófun. Tilbúnu skjölin endurnýta sniðmát og yfirferð merkinga er ólokið. Tölurnar segja ekki til um daglega notkun eða DMZ í heild.

Aðferð og niðurstöður →

TILBÚIN DÆMI · GAGNLEGAR ATHUGASEMDIR

Hjálpaðu til við að bæta DMZ.

Taktu þátt →